Ferðastyrkir Rannsóknasjóðs

ferðir

Vísindanefnd auglýsir ferðastyrki til handa doktorsnemum við Háskóla Íslands. Styrkirnir eru ætlaðir til ráðstefnuferða og er ætlast er til að stúdent sé með framlag á þeirri ráðstefnu sem sótt er um styrk fyrir.

Umsóknarfrestur 1. maí. ATH. Hægt er að sækja um fyrir ferðir á ráðstefnur fyrir ALLT ÁRIÐ 2012.

Ef ráðstefna er á þeim tíma árs að dagskrá er ekki tilbúin (eða samþykkt framlags), skal veita sem bestar upplýsingar eðli ráðstefnunnar í umsókn. Það er er gert með tilvísan í t.d. vefslóð. Í slíkum tilfellum er hægt að veita skilyrtan styrk gegn því að betri upplýsingar og/eða sönnun á framlagi stúdents berist vísindasviði.

Afgreiðsla styrks er háð því er að útdráttur (eða önnur sönnun á framlagi stúdents) hafi verið samþykktur á ráðstefnu.

Upphæð styrks var 50.000 kr. fyrir árið 2011.

Umsóknareyðublað/Application form.

Leiðbeiningar - Instructions