Auglýst eftir umsóknum um styrki til doktorsnáms
Minningarsjóður Bjargar Magnúsdóttur ljósmóður og Magnúsar Jónassonar bónda auglýsir eftir umsóknum um styrki til doktorsnáms
Styrkir verða veittir úr sjóðnum í fyrsta sinn í tilefni 250 ára menntunarafmælis ljósmæðra árið 2011 og þess að árið 2012 eru 100 ár liðin frá stofnun Yfirsetukvennaskóla Íslandi, forvera námsbrautar í ljósmóðurfræði við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Áætlað er að úthlutað verði í byrjun árs 2012.
Markmið og hlutverk sjóðsins er að styrkja ljósmæður og hjúkrunarfræðinga til doktorsnáms. Úr hópi hjúkrunarfræðinga skulu þær sem hyggja á framhaldsnám í ljósmóðurfræði hafa forgang. Áhersla er lögð á vönduð fræðileg vinnubrögð við gerð umsóknar og skulu styrkþegar skila skýrslu til stjórnar um nýtingu styrksins, framvindu og lok náms.
Heildarfjárhæð úthlutaðra styrkja er að hámarki 1,5 milljón króna.
Umsóknarfrestur er til 6. febrúar 2012.
Í umsókn um styrk þurfa eftirfalin atriði að koma fram:
i. Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og virkt netfang.
ii. Helstu atriði úr náms- og starfsferli umsækjanda og ritaskrá leiðbeinanda.
iii. Heiti doktorsverkefnis, markmið og vísindalegt gildi.
iv. Hnitmiðuð lýsing á verkefninu, að hámarki 150 orð sem verður nýtt til almennrar umfjöllunar og kynningar, hljóti verkefnið styrk.
v. Veigameiri lýsing á doktorsverkefni að hámarki ein blaðsíða.
vi. Tímaáætlun, fjárhagsáætlun og helstu samstarfsaðilar verkefnisins.
vii. Hvernig styrkurinn verði notaður.
viii. Annar fjárhagslegur stuðningur.
ix. Meðmæli
Hámarkslengd umsóknar eru þrjár síður fyrir utan fylgiskjöl. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Stjórn sjóðsins áskilur sér rétt til að veita fleiri en einum umsækjanda styrk, hafna öllum og/eða úthluta styrkjum með öðrum hætti.
Umsóknum skal skila sem viðhengi á netfangið sjodir@hi.is. Frekari upplýsingar fást á sjóðavef Háskóla Íslands, www.sjodir.hi.is. Einnig hjá Björgu Magnúsdóttur, verkefnisstjóra Styrktarsjóða bjm1@hi.is, sími 525-4219.

