Greiningarsjóður SHÍ

Stúdentaráð starfrækir greiningarsjóð fyrir nemendur með sértæka
námsörðugleika þar sem þeir þurfa á greiningu vegna þess að halda geta sótt um
styrk upp í kostnaðvið greiningu. Greiningar af þessu tagi eru oft mjög dýrar
en til þess að HÍ geti komið til móts við nemendur með öryggi verða nemendur að
fá greiningu af fagaðilum. Fyrsta úthlutun sjóðsins fór fram í apríl 2007 en
stefnt er að því að úthluta einu sinni áhverri önn.

Stjórn sjóðsins skipa

  • Sara Sigurðardóttir, formaður Stúdentaráðs
  • Stefán Jóhann Sigurðsson, formaður jafnréttisnefndar Stúdentaráðs
  • María Dóra Björnsdóttir, deildarstjóri Náms- og starfsráðgjafar

Lög sjóðsins:

Lög um Greiningarsjóð fyrir nemendur með sértæka
námsörðugleika

1. Nafn og hlutverk

1.1. Nafn sjóðsins er
,,Greiningarsjóður fyrir nemendur með sértæka námsörðuleika og athyglisbrest
með eða án ofvirkni (ADHD)‘‘ og er hann í vörslu S.H.Í.

1.2. Hlutverk sjóðsins er
að koma til móts við kostnað námsmanna sem fara í greiningu vegna sértækra
námsörðugleika og vegna athyglisbrests/ofvirkni (ADHD)

2. Stjórn sjóðsins

2.1. Stjórn sjóðsins skal
skipuð 3 mönnum, formanni Jafnréttisnefndar S.H.Í, náms- og starfsráðgjafa frá
Háskóla Íslands og formanni S.H.Í.

2.2. Fyrsta fund
sjóðsstjórnar skal halda fyrir 1. október. Á fyrsta fundi sjóðsstjórnar, sem
formaður S.H.Í. kallar til, skal velja formann sjóðsins og varaformann, sem
jafnframt er ritari stjórnar. Hlutverk formanns sjóðsstjórnar er að halda utan
um starfsemi sjóðsins, skv. reglugerð þessari og verklagsreglum fyrir formann
sjóðsstjórnar.

2.3. Sjóðsstjórn skal
halda fundargerðir.

2.4. Til þess að fundur sé
ályktunarhæfur þurfa 2 skipaðir fulltrúar að sitja hann. Ef atkvæði standa á
jöfnu ræður atkvæði formanns, en atkvæði varaformanns að honum fjarstöddum.

2.5. Sjóðsstjórn skal
setja sér vinnureglur í anda þessara laga fyrir fyrstu úthlutun og skulu sömu
vinnureglur gilda um allar úthlutanir á hverju ári.

2.6. Þegar sérstaklega
stendur á er heimilt að beina því til Stúdentaráðs að Stúdentaráð kjósi stjórn
sjóðsins sérstaklega, á þá grein 2.1 ekki við. Eigi að síður skal náms- og
starfsráðgjafa frá Háskóla Íslands vera boðið að sitja í sjóðsstjórn með
atkvæðisrétt.

3. Fjármagn sjóðsins

3.1. Sjóðsstjórn skal
skipa 3 einstaklinga á ári hverju til að sækja um styrki frá fyrirtækjum og
félagasamtökum til að fjármagna sjóðinn. Einnig má fjármagna sjóðinn með gjöfum
og framlögum sem honum kunna að berast.

4. Úthlutunarreglur

4.1. Sjóðsstjórn skal
úthluta styrkjum a.m.k. einu sinni á hvoru misseri. Fyrsta úthlutun skal fara
fram fyrir 1. nóvember. Sjóðsstjórn skal auglýsa væntanlega úthlutun í
tölvupósti til allra stúdenta við H.Í. sem og á öllum helstu miðlum
Stúdentaráðs.

4.2. Úthlutun skal fara
fram eigi síðar en 2 vikum eftir að umsóknarfrestur rennur út. Umsóknareyðublöð
ásamt reglugerð þessari og vinnureglum sjóðsins skulu liggja frammi á
skrifstofu S.H.Í. og vera aðgengilegar á heimasíðu S.H.Í. Umsóknaraðili, sem
jafnframt er ábyrgðaraðili umsóknarinnar, ber ábyrgð á því að formlega sé tekið
á móti umsókninni. Með umsókn skal skila inn öllu því sem tilgreint er í gr.
6.1.

4.3. Sjóðsstjórn ber að
tilkynna umsækjanda um afgreiðslu umsóknar í tölvupósti. Þar skal einnig
tilgreina fjárhæð styrks, hvar megi vitja hans.

5. Hvað er styrkhæft

5.1. Allir stúdentar við
Háskóla Íslands geta sótt um styrk ef þeir hafi farið í greiningu vegna
sértækra námsörðugleika eða athyglisbrests/ofvirkni (ADHD) og fengið
niðurstöður þaðan.

5.2. Styrk má ekki veita
ef meira en ár er liðið frá því að niðurstöður úr greiningu vegna sértækra
námsörðugleika eða athyglisbrests/ofvirkni (ADHD) urðu ljósar.

5.3. Styrkur skal koma til
móts við umsækjanda eins og fjármál sjóðsins leyfa.

5.4. Óheimilt er að veita
meira en 75% af heildarsjóðnum í styrki á ári hverju.

5.5. Sé styrkur ekki
sóttur innan 6 mánaða telst hann þar með niðurfallinn, enda hafi styrkþega
verið eða mátt vera kunnugt um að beiðni hans hafi verið tekin til greina.

5.6. Úrskurðir
sjóðsstjórnar eru fullnaðarúrskurðir.

6. Skyldur styrkþega

6.1. Styrkþegi skal skila
inn afriti af niðurstöðu greiningar um sértæka námsörðugleika eða
athyglisbrests/ofvirkni (ADHD), upplýsingum um hver framkvæmdi hana ásamt
afriti af reikningi vegna greiningarinnar. Umsókn þar að innihalda stutta
greinargerð um umsækjenda ásamt helstu tengiliða upplýsingum.

7. Gildistaka og annað

7.1. Sjóðsstjórn skal, að
loknu hverju starfsári, senda skrifstofu S.H.Í. skriflega skýrslu um starf
sitt. Í skýrslunni skal koma fram hverjum hafi verið úthlutaðir styrkir og
hversu mikið. Einnig skulu þar koma fram athugasemdir ef einhverjar eru á lögum
þessum.

7.2. Jafnréttisnefnd
S.H.Í. skal endurskoða lög þessi á eins árs fresti og leggja breytingartillögur
fyrir S.H.Í.

7.3. Lög þessi taka nú
þegar gildi.

English version:

SHI's
Diagnosis Fund for students with specific learning difficulties