Háskólasjóður Eimskipafélagsins auglýsir eftir umsóknum
Markmið Háskólasjóðs Eimskipafélags Íslands er að efla Háskóla Íslands sem alþjóðlegan
rannsóknaháskóla og gera hann eftirsóknarverðan kost fyrir doktorsnema. Stúdentar, fastráðnir kennarar og sérfræðingar sem uppfylla kröfur sjóðsins og kröfur sem gerðar eru til leiðbeinenda í framhaldsnámi geta sótt um styrki. Sjá nánar hér.
Að öðru leyti er bent á reglur sjóðsins. Þær er að finna á heimasíðu hans.
Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2012.
Umsókn skal vera á íslensku eða ensku. Umsóknir geta verið af tvennum toga:
a) Stúdent og leiðbeinandi sækja um í sameiningu.
b) Leiðbeinandi sækir um á grundvelli verkefnis.
Hljóti leiðbeinandi vilyrði um styrk, sbr. leið b, skal leiðbeinandi auglýsa styrkinn til umsóknar og velja úr umsækjendum. Styrkur er háður því að stúdent sem valinn er verði samþykktur af viðkomandi deild og vísindanefnd háskólaráðs. Styrkirnir eru ætlaðir til framfærslu nemenda til allt að þriggja ára. Umsóknum skal skilað rafrænt. Umsóknareyðublað er finna hér.
Frekari upplýsingar veitir Sverrir Guðmundsson á skrifstofu vísindasviðs, sími: 525 4352, sverrirg@hi.is.
