Háskólasjóður Eimskipafélags Íslands - Eimskip Fund of The University of Iceland
Tilgangur sjóðsins er að styrkja efnilega stúdenta til náms við Háskóla Íslands og stuðla þannig að velgengni Háskólans.
Stúdentar sem skráðir eru til doktorsnáms við Háskóla Íslands geta sótt um styrki úr sjóðnum. Kennarar og sérfræðingar geta enn fremur sótt um styrki fyrir væntanlega doktorsnema. Sérstök úthlutunarnefnd metur umsóknir um styrki úr sjóðnum ásamt vísindanefnd Háskólaráðs.

Umsóknarfrestur er til 15. janúar. Úthlutun er lokið fyrir 2012. Listi yfir styrkþega doktorssjóða.
Auglýsing um styrk úr sjóðnum (.pdf)
Umsóknareyðublað og leiðbeiningar (Application form and guidelines)
Háskólasjóður H/f Eimskipafélagsins var stofnaður árið 1964 til minningar um alla þá Vestur-Íslendinga, sem hlut áttu að stofnun Hf. Eimskipafélags Íslands. Sjóðurinn tekur á móti gjöfum og áheitum þeirra manna er styðja vilja starfsemi hans.
Sjóðurinn hefur starfað í núverandi mynd frá árinu 2005 en þá voru gerðar breytingar á fyrirkomulagi sjóðsins með það markmið að veita styrki til stúdenta í rannsóknatengdu framhaldsnámi við Háskóla Íslands. Fyrsta úthlutun úr sjóðnum fór fram árið 2006.
Háskólasjóður Eimskipafélagsins veitti framlag, ásamt Happdrætti Háskóla Íslands, til byggingar Háskólatorgs sem var vígt í byrjun desember árið 2007.
Sjóðurinn starfar samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og sjálfstæðri fjárfestingarstefnu. Þá hefur sjóðurinn sjálfstætt starfandi stjórn.
Fréttir
- 18. ókt 2011 Tólf doktorsnemar hljóta styrki
- 24. maí 2011 Sextíu milljónir til doktorsnema
- 14. des 2010 Háskólasjóður Eimskipafélagsins styrkir doktorsnema um allt að 60 milljónir króna
- 12. mar 2008 Fjórtán doktorsnemar við Háskóla Íslands hljóta 78 milljón króna styrk
- 07. mar 2007 Fjórtán doktorsnemar hljóta styrki úr Háskólasjóði Hf. Eimskipafélags Íslands
- 1 of 2
- ››