Háskóli Íslands

Nærri 150 umsóknir um doktorsstyrki við HÍ

Háskóla Íslands hafa borist 147 umsóknir um doktorsstyrki við skólann en umsóknarfrestur rann út 15. janúar sl. Árlega eru veitir styrkir úr Háskólasjóði H/f Eimskipafélags Íslands og Rannsóknasjóði Háskóla Íslands en til viðbótar við þá var að þessu sinni auglýst eftir umsóknum um styrki sem eru bundnir sérstökum viðfangsefnum. Um er að ræða tvö til þrjú verkefni sem eru fjármögnuð af ISAVIA og skulu tengjast rannsóknum á flugstarfsemi.

Umsóknir um doktorsstyrki skiptast þannig eftir sviðum að þessu sinni: Félagsvísindasvið: 20 umsóknir, Heilbrigðisvísindasvið: 36 umsóknir, Hugvísindasvið: 33 umsóknir, Menntavísindasvið: 8 umsóknir og Verkfræði- og náttúruvísindasvið: 50 umsóknir.

Sérstök úthlutunarnefnd úthlutar styrkjum úr Háskólasjóði Eimskipafélagsins en vísindanefnd háskólaráðs úthlutar styrkjum úr Rannsóknasjóði háskólans. Sjá frekar um reglur doktorssjóða.

Styrkir eru veittir til rannsóknarverkefna doktorsnema og leiðbeinenda en einnig eru vísindamönnum veittir styrkir til að ráða til sín doktorsnema við Háskóla Íslands. Við mat á umsóknum er tekið mið af gæðum verkefnanna, virkni leiðbeinenda og hæfni nemenda. Sjá nánar um viðmið við mat á umsóknum.

Markmið styrkveitinganna er að efla Háskóla Íslands sem alþjóðlegan rannsóknaháskóla og gera hann eftirsóknarverðan fyrir doktorsnema. Það er í samræmi við við stefnu Háskóla Íslands fyrir árin 2011-2016. Efling doktorsnáms við háskólann gerir honum jafnframt kleift að sinna hlutverki sínu sem æðsta menntastofnun þjóðarinnar. Öflugur rannsóknaháskóli er frumskilyrði þess að Íslendingar séu samkeppnisfærir á vettvangi vísinda, nýsköpunar og atvinnuþróunar innan þekkingarsamfélags þjóðanna.

Þetta verður í áttunda skipti sem doktorsstyrkjum er úthlutað, bæði úr Háskólasjóði H/f Eimskipafélags Íslands og Rannsóknasjóði Háskóla Íslands. Doktorsstyrkir voru síðast veittir við Háskóla Íslandsvorið 2013, alls 33 vísindastyrkir til rannsóknatengdra verkefna á ólíkum sviðumm, þar af einn styrkur frá ISAVIA og einn úr dánarbúi Ásrúnar Einarsdóttur.

Nánari upplýsingar er að finna á síðu um doktorsstyrki við Háskóla Íslands.
 

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is