Reglur
Reglur um styrki úr Háskólasjóði Eimskipafélags Íslands til stúdenta í doktorsnámi við Háskóla Íslands
Tilgangur Háskólasjóðs Eimskipafélags Íslands er að stuðla að velgengni Háskóla Íslands og styrkja efnilega stúdenta til náms við skólann. Markmið styrkja úr Háskólasjóði Eimskipafélags Íslands er að efla háskólann sem alþjóðlegan rannsóknaháskóla og gera hann eftirsóknarverðan kost fyrir doktorsnema.
Reglur um styrki úr Háskólasjóði Eimskipafélags Íslands til stúdenta í doktorsnámi við Háskóla Íslands
samþykktar í háskólaráði 2. desember 2010.*
1. Tilgangur
Tilgangur Háskólasjóðs Eimskipafélags Íslands er að stuðla að velgengni Háskóla Íslands og styrkja efnilega stúdenta til náms við skólann. Markmið styrkja úr Háskólasjóði Eimskipafélags Íslands er að efla háskólann sem alþjóðlegan rannsóknaháskóla og gera hann eftirsóknarverðan kost fyrir doktorsnema.
2. Úthlutunarnefnd
Stjórn Háskólasjóðs Eimskipafélags Íslands skipar sex manna úthlutunarnefnd að tillögu rektors til tveggja ára í senn og ákveður hver verður formaður nefndarinnar. Formaður vísindanefndar háskólaráðs skal hafa fast sæti í úthlutunarnefnd. Að minnsta kosti tveir fulltrúar í nefndinni skulu vera í aðalstarfi utan Háskóla Íslands. Við skipan úthlutunarnefndar skal leitast við að hún endurspegli fræðasvið háskólans. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti.
Hlutverk úthlutunarnefndar er að úthluta styrkjum til doktorsnema úr Háskólasjóði Eimskipafélags Íslands. Nefndin setur sér verklagsreglur um meðferð umsókna, mat á umsóknum og úthlutunarferli eftir því sem þurfa þykir.
Breytingar á reglum þessum skulu staðfestar í háskólaráði og kynntar sérstaklega í tengslum við auglýsingar sjóðsins. Úthlutunarnefnd skal árlega, að lokinni úthlutun, gera stjórn Háskólasjóðs Eimskipafélags Íslands og háskólaráði grein fyrir styrkveitingum undangengins árs og starfseminni framundan.
3. Vísindasvið og vísindanefnd
Vísindasvið Háskóla Íslands hefur umsjón með auglýsingu um styrki, upplýsingagjöf, móttöku og meðferð umsókna í umboði úthlutunarnefndar. Vísindasvið veitir úthlutunarnefnd og vísindanefnd háskólaráðs almenna skrifstofuþjónustu. Vísindanefnd metur vísindalegt gildi verkefna, vísindalega hæfni leiðbeinanda og náms- og rannsóknaferil stúdents. Vísindasvið og vísindanefnd skulu leita eftir umsögnum annarra sérfræðinga eftir því sem þurfa þykir. Úthlutunarreglur þessar og verklagsreglur úthlutunarnefndar gilda um málsmeðferð vísindanefndar.
Kostnaður vegna vinnu úthlutunarnefndar og vísindanefndar háskólaráðs er greiddur af Háskólasjóði Eimskipafélags Íslands, en kostnaður vegna umsýslu vísindasviðs Háskóla Íslands skal greiddur af háskólanum.
4. Umsækjendur
Stúdentar sem uppfylla inntökuskilyrði viðkomandi deildar í doktorsnám og fastráðnir kennarar eða sérfræðingar við Háskóla Íslands, sem ráðnir eru á grundvelli hæfnisdóms og uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til leiðbeinenda í Viðmiðum og kröfum um gæði doktorsnáms við Háskóla Íslands, geta sótt um styrk til sjóðsins.
5. Umsóknir
Umsóknir til sjóðsins geta verið af tvennum toga:
a) Stúdent og leiðbeinandi sækja til sjóðsins í sameiningu.
b) Leiðbeinandi sækir um án stúdents.
Hljóti leiðbeinandi vilyrði um styrk án stúdents skal leiðbeinandi auglýsa styrkinn til umsóknar. Leiðbeinandi hefur að hámarki fjóra mánuði til að velja stúdent. Að þeim tíma liðnum fellur vilyrði um styrk niður. Vísindanefnd metur hvort sá stúdent sem leiðbeinandi velur uppfylli skilyrði reglna þessara. Styrkur er háður því að úthlutunarnefnd fallist á niðurstöðu vísindanefndar.
Umsóknum skulu fylgja:
• Greinargerð um rannsóknarverkefnið, markmið þess og vísindalegt gildi,
• ferils- og ritaskrá stúdents (leið a) og leiðbeinanda,
• námsáætlun stúdents (leið a), stutt greinargerð um aðstöðu til námsins og
• önnur gögn sem styrkt geta umsókn, s.s. meðmæli.
Umsókn skal að jafnaði vera á íslensku, en heimilt er að leggja inn umsókn á ensku.
6. Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur er að jafnaði til 15. janúar fyrir komandi háskólaár og skal úthlutun lokið í mars. Rektor er heimilt að ákveða aðra umsóknarfresti. Auglýsing um umsóknarfrest skal birt eigi síðar en mánuði fyrir umsóknarfrest.
7. Mat á umsóknum
Við mat á umsóknum skal m.a. litið til eftirfarandi þátta:
• Vísindagildis fyrirhugaðs rannsóknarverkefnis,
• frammistöðu nemenda í grunn- og framhaldsnámi (leið a),
• námsáætlunar (leið a),
• rannsóknavirkni leiðbeinanda,
• hvort aðstaða í deild sé fullnægjandi og
• frágangs umsóknar.
8. Skyldur styrkþega
Styrkþegi skal sinna doktorsnáminu í fullu starfi meðan hann nýtur stuðnings sjóðsins og skal ekki sinna öðru starfi á styrktímabilinu, enda skal hann stunda fullt nám samkvæmt 53. gr. sameiginlegra reglna háskólans og námsframvindureglum viðkomandi deildar. Deild getur falið styrkþega verkefni á sviði kennslu eða rannsókna eða samþykkt að hann taki að sér slík verkefni fyrir aðra aðila, enda nemi verkefnin í heild ekki meira en 20% af fullu starfi. Sérstaklega skal greiða fyrir þetta vinnuframlag styrkþega.
9. Fjárhæð styrkja og greiðslufyrirkomulag
Úthlutunarnefnd tekur árlega ákvörðun um fjárhæð styrkja. Stúdentinn er styrkþeginn og rennur styrkurinn óskiptur til framfærslu hans. Styrkurinn er greiddur út í jöfnum greiðslum, 1. hvers mánaðar á styrktímabilinu. Vísindasvið gerir samning við styrkþega um mánaðarlegar greiðslur í samræmi við námsáætlun. Samningur þessi skal endurskoðaður árlega í samræmi við framvindu námsins, sbr. 10. tl.
Styrkurinn er greiddur sem laun og nýtur stúdentinn réttinda og hefur skyldur í samræmi við kjarasamninga.
10. Framvinda doktorsnáms
Leiðbeinandi og doktorsnemi skila vísindasviði árlega (15. janúar) sameiginlegri framvinduskýrslu, þar sem þeir gera grein fyrir stöðu doktorsnáms og –verkefnis. Skil á framvinduskýrslu eru á ábyrgð leiðbeinanda og stúdents. Fullnægjandi framvinduskýrsla er forsenda styrkgreiðslna.
Eigi síðar en tveimur mánuðum eftir doktorsvörn skila leiðbeinandi og nýdoktor eintaki af doktorsritgerð Síðasta mánaðargreiðsla styrks er innt af hendi þegar doktorsritgerð og lokaskýrsla berast vísindasviði.
11. Viðurkenning og úthlutunarathöfn
Leiðbeinandi og doktorsnemi skulu geta sjóðsins í þeim ritsmíðum sínum sem tengjast styrk sjóðsins. Úthlutun styrkja fer fram við hátíðlega athöfn og skal gera opinberlega grein fyrir þeim verkefnum sem styrk hljóta.
--------------
* Háskólaráð samþykkti reglur fyrir Háskólasjóð Eimskipafélags Íslands 8. desember 2005. Reglurnar voru endurskoðaðar í ljósi reynslunnar og þeim breytt á fundi ráðsins 2. desember 2010 að tillögu úthlutunarnefnda Háskólasjóðsins og vísindanefndar háskólaráðs, sem fer með faglegt mat á umsóknum. Helsta breytingin varðar umsóknarfrestinn sem er færður frá 10. október til 15. janúar og sömuleiðis er rektor heimilt að ákveða aðra umsóknarfresti. Einnig er skerpt á því meginhlutverki sjóðsins að styrkja doktorsnema, en í fyrri reglum var heimilt að styrkja meistaranema í sérstökum tilfellum. Þá er fest í reglurnar ákvæði um að styrkurinn verði greiddur sem laun sem þýðir að styrkþegar öðlast aukin réttindi og fá skyldur í samræmi við kjarasamninga.
