Sáttmálasjóður

Sáttmálasjóður var stofnaður á grundvelli sambandslagasamningsins milli Íslands og Danmerkur og 14. gr. sambandslaganna nr. 39/1918. Honum var á sínum tíma sett stofnskrá sem staðfest var og auglýst. Meginmarkmið sjóðsins er “að styðja íslenska vísindastarfsemi.”

Fastir kennarar
Sáttmálasjóður veitir ferðastyrki til fastra kennara (prófessora, dósenta og lektora) í fullu starfi auk vísindamanna, fræðimanna og sérfræðinga, sem ráðnir eru til sjálfstæðra vísindastarfa með a.m.k. 40% rannsóknarskyldu, hlotið hafa hæfnisdóm og taka laun samkvæmt kjarasamningum Félags háskólakennara og fjármálaráðuneytisins.

Heimildartímabil eru tvö ár.

1. Styrkir eru veittir styrkþega til ferða á erlenda grund á alþjóðlegar vísindaráðstefnur, til þátttöku í alþjóðlegum vísindalegum verkefnum og til gagnaöflunar vegna rannsókna að uppfylltum eftirfarandi úthlutunarreglum Sáttmálasjóðs:

a) Til að fá styrk úr Sáttmálasjóði til ferða á erlenda grund á alþjóðlegar vísindaráðstefnur þarf viðkomandi að vera með framlag á ráðstefnunni.

b) Hægt er að sækja um styrk ef tilefni ferðar er að koma af stað rannsóknarsamstarfi. Rökstyðja skal það sérstaklega og lýsa vandlega fyrirhuguðu samstarfi/rannsókn með höfuðáherslu á líklegan ávinning samstarfsins fyrir starf viðkomandi við Háskóla Íslands.

c. Enn fremur er hægt að sækja um styrk til ferðar til þess að afla nauðsynlegra gagna til rannsókna í bókasöfnum/skjalasöfnum í útlöndum, enda sé ekki kostur á að afla þeirra með öðrum hætti. Rökstyðja skal það sérstaklega og lýsa vandlega nauðsyn á fyrirhugaðri gagnaöflun og ástæðum þess að ekki sé unnt að nálgast gögnin með öðrum hætti.

2. Styrkir úr Sáttmálasjóði skiptast í styrki til greiðslu fargjalda og styrki til greiðslu dagpeninga.

3. Hámarksstyrkur úr Sáttmálasjóði til hvers umsækjanda getur á hverju heimildartímabili numið 100.000 krónum til greiðslu fargjalda. Hámarkslengd einstakra ferða eru tveir dagar umfram lengd ráðstefnu, þó ekki meira en 7 dagar. Heildarfjöldi daga á ári eru 7. Hægt er að skipta styrknum til fleiri en einnar ferðar á hverju heimildartímabili. Hámarksstyrkur miðast við 100% starfshlutfall.

Heimild starfsmanna í lægra starfshlutfalli en 100% til styrkja

 Starfsmenn í stöðum sbr. 1 grein og eru í aðalstarfi við Háskóla Íslands, með starfshlutfall 51% eða meira njóta styrkja úr Sáttmálasjóði í samræmi við starfshlutfall.

Minni styrkur Sáttmálasjóðs - úthlutunarreglur:

Auk þess veitir Sáttmálasjóður ferðastyrki öðru starfsfólki Háskólans sem hefur háskólapróf og gert hefur starfssamning við starfsmannasvið skólans. Styrkupphæð er 100.000 og hægt er að sækja um styrk annað hvert ár. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að umsækjandi hyggist afla sér færni og fróðleiks fyrir starf sitt við skólann og uppfylla neðangreindar úthlutunarreglur sjóðsins. Einungis eru veittir styrkir til ferða sem eru ófarnar þegar umsóknarfrestur rennur úr. Umsóknarfrestur á minni styrk Sáttmálasjóðs er til 30. apríl. 

Styrkir eru veittir styrkþega til ferða á erlenda grund á alþjóðlegar vísindaráðstefnur, til þátttöku í alþjóðlegum vísindalegum verkefnum og til gagnaöflunar vegna rannsókna að uppfylltum eftirfarandi úthlutunarreglum Sáttmálasjóðs:

a) Til að fá styrk úr Sáttmálasjóði til ferða á erlenda grund á alþjóðlegar vísindaráðstefnur þarf viðkomandi að vera með framlag á ráðstefnunni.

b) Hægt er að sækja um styrk ef tilefni ferðar er að koma af stað rannsóknarsamstarfi. Rökstyðja skal það sérstaklega og lýsa vandlega fyrirhuguðu samstarfi/rannsókn með höfuðáherslu á líklegan ávinning samstarfsins fyrir starf viðkomandi við Háskóla Íslands.

c) Enn fremur er hægt að sækja um styrk til ferðar til þess að afla nauðsynlegra gagna til rannsókna í bókasöfnum/skjalasöfnum í útlöndum, enda sé ekki kostur að afla þeirra með öðrum hætti. Rökstyðja skal það sérstaklega og lýsa vandlega nauðsyn á fyrirhugaðri gagnaöflun og ástæðum þess að ekki sé unnt að nálgast gögnin með öðrum hætti.  

Umsjónarmaður Sáttmálasjóðs er Birna Björnsdóttir verkefnisstjóri á fjármálasviði.  Skrifstofa hennar er í kjallara vesturhluta aðalbyggingar, sími 525-4335 og netfangið er  birnabjo@hi.is.

Umsóknareyðublað um Sáttmálasjóð (.pdf)

Rafrænt umsóknareyðublað (vistað á Uglu)