Sjóðavefur Háskóla Íslands opnaður

Nýr sjóðavefur Háskóla Íslands hefur verið opnaður og er slóð vefsins sjodir.hi.is. Á vefnum er að finna á einum stað upplýsingar um alla sjóði og styrki sem nemendum, kennurum, vísindamönnum og starfsfólki háskólans standa til boða. Einfalt er að finna mögulega styrki innan fræðasviða og deilda háskólans. Á nýja vefnum má finna upplýsingar um rannsóknir og önnur verkefni sem fengið hafa styrk úr sjóðum Háskóla Íslands. Þar er einnig að finna upplýsingar um styrki sem auglýstir eru til umsóknar.

Annars vegar er um að ræða styrki til rannsókna úr sérstökum rannsóknasjóðum háskólans sem veita doktorsnemum og fræðimönnum við skólann styrki til vísindarannsókna. Hins vegar er um að ræða viðurkenningar í formi styrkja úr Styrktarsjóðum Háskóla Íslands sem veittir eru til stúdenta og starfsmanna.

Rannsóknasjóðir Háskóla Íslands
Árið 2010 voru veittir um 300 styrkir til einstaklinga innan allra fræðasviða Háskóla Íslands og stofnana hans. Heildarfjárhæð styrkja nam um 270 milljónum króna. Ætla má að um 70-80% þeirrar fjárhæðar hafi runnið með einum eða öðrum hætti til stúdenta í framhaldsnámi við Háskóla Íslands. Styrkir rannsóknasjóða Háskóla Íslands eru einkum nýttir til greiðslu launa aðstoðarfólks kennara, efniskostnaðar og annars kostnaðar við rannsóknir. Þá eru veittir framfærslustyrkir til doktorsnema til allt að þriggja ára. Sérstakir styrkir eru einnig veittir til ráðstefnuferða doktorsnema og til nýdoktora.

Sjóðirnir eru að mestu fjármagnaðir af fjárveitingum en einnig af Happdrætti Háskóla Íslands auk framlags úr Háskólasjóði Eimskipafélags Íslands. Allir styrkir sem veittir eru úr rannsóknasjóðum Háskóla Íslands eru auglýstir til umsóknar og fer úthlutun fram að undangengnu faglegu mati.

Styrktarsjóðir Háskóla Íslands
Undir Styrktarsjóði Háskóla Íslands heyra rúmlega sextíu sjóðir og gjafir sem borist hafa háskólanum og verið ánafnaðar honum. Flestir þessara sjóða starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá þar sem fram kemur markmið þeirra og tilgangur, sem eru mjög mismunandi. Rúmlega fjörutíu styrkir og viðurkenningar hafa verið veittar úr Styrktarsjóðum Háskóla Íslands á síðustu tólf mánuðum og nemur heildarfjárhæð styrkúthlutana og viðurkenninga ríflega 23 milljónum króna. Úthlutunum úr sjóðnum hefur fjölgað á síðustu árum þrátt fyrir að margir þeirra hafi rýrnað við efnahagshrunið árið 2008.

Að öllu jöfnu eru styrkir sem veittir eru úr Styrktarsjóðum Háskóla Íslands auglýstir til umsóknar en einnig eru veittar viðurkenningar til útnefndra styrkhafa sem hafa sýnt afburðaárangur í námi og/eða starfi. Stjórn hvers styrktarsjóðs fer með málefni hans en úthlutanir miðast við ráðstöfunarfé sjóðsins ár hvert samkvæmt niðurstöðu ársreiknings. Leitast er við að úthluta reglulega úr þeim sjóðum sem hafa laust fé til ráðstöfunar.

Sjóðavefur Háskóla Íslands