Háskóli Íslands

Styrkir til blindra og sjónskertra stúdenta við Háskóla Íslands

Stjórn Þórsteinssjóðs auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Sjóðurinn veitir styrki til blindra og/eða sjónskertra nemenda við Háskóla Íslands.

Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 2013.

Tilgangur Þórsteinssjóðs er í fyrsta lagi að styrkja blinda og sjónskerta stúdenta til náms við Háskóla Íslands. Í öðru lagi er markmið sjóðsins að efla rannsóknir á fræðasviðum sem aukið geta þekkingu á blindu og skertri sýn, einkum í félags- og hugvísindum.

Í ár verða veittir námsstyrkir til blindra og sjónskertra stúdenta sem stunda nám við Háskóla Íslands skólaárið 2013-2014. Heildarfjárhæð úthlutaðra styrkja er 1,5 milljón króna.

 

Í umsókn þurfa eftirtalin atriði að koma fram:
1.    Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og netfang.
2.    Helstu atriði úr náms- og/eða starfsferli umsækjanda og námsárangur í framhaldsskóla eða háskóla eftir því sem við á.
3.    Hvaða nám viðkomandi stundar við Háskóla Íslands.
4.    Meðmæli frá kennurum og/eða atvinnurekendum.
5.    Áætlun um námsframvindu.

Vakin athygli á því að heimilt er að sækja oftar einu sinni um styrki úr Þórsteinssjóði.

Tilkoma Þórsteinssjóðs hefur aukið möguleika blindra og sjónskertra stúdenta til að helga sig háskólanámi. Þetta er í sjötta sinn sem úthlutað er úr sjóðnum en veitir hafa verið átta styrkir til nemenda við Háskóla Íslands og einn styrkur til rannsóknarverkefnis.

Þórsteinssjóður var stofnaður við Háskóla Íslands 6. desember 2006 af Blindravinafélagi Íslands til minningar um Þórstein Bjarnason stofnanda Blindravinafélagsins. Tilgangur Þórsteinssjóðs helgast af æviverki Þórsteins að efla líf blindra og sjónskertra einstaklinga á Íslandi.

Frekari upplýsingar um styrkveitingu og úthlutun er að finna á heimasíðu HÍ og sjóðavef HÍ. Einnig hjá Helgu Brá Árnadóttur, verkefnastjóra styrktarsjóða og hollvina, helgab@hi.is, sími 525-5894.

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is