Háskóli Íslands

Styrkir til doktorsnáms í ljósmóður- og hjúkrunarfræði

Minningarsjóður Bjargar Magnúsdóttur ljósmóður og Magnúsar Jónssonar bónda auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum.

Markmið og hlutverk sjóðsins er að styrkja ljósmæður og hjúkrunarfræðinga til framhaldsnáms. Úr hópi hjúkrunarfræðinga hafa umsækjendur sem hyggja á framhaldsnám í ljósmóðurfræði forgang. 

 
Umsóknarfrestur er til 1. desember 2014.

Styrkir eru veittir til doktorsnáms í samræmi við markmið sjóðsins.  
Heildarfjárhæð styrks er kr. 1.000.000.

Í umsókn um styrk þurfa eftirfalin atriði að koma fram:
•    Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og virkt netfang.
•    Helstu atriði úr náms- og starfsferli umsækjanda og ritaskrá  leiðbeinanda síðastliðin 5 ár .
•    Heiti doktorsverkefnis, markmið og vísindalegt gildi.
•    Hnitmiðuð lýsing á verkefninu, að hámarki 150 orð sem verður nýtt til almennrar umfjöllunar og kynningar, hljóti verkefnið styrk.
•    v. Veigameiri lýsing á rannsóknarverkefni að hámarki ein blaðsíða, þar sem fram kemur markmið verkefnisins, hvernig því er ætlað að auka við núverandi þekkingu á sviði rannsóknarinnar og hvernig það styður við markmið sjóðsins.
•    Rannsóknaráætlun sem felur m.a. í sér tímaáætlun, fjárhagsáætlun og helstu samstarfsaðila verkefnisins.
•    Hvernig styrkurinn verði notaður.
•    Annar fjárhagslegur stuðningur.
•    Nöfn, símanúmer og netföng þeirra sem leita má til um meðmæli.

Hámarkslengd umsóknar eru 3 síður fyrir utan fylgiskjöl.  Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Stjórn sjóðsins áskilur sér rétt til að veita fleiri en einum umsækjanda styrk, hafna öllum og/eða úthluta styrkjum með öðrum hætti.
Áhersla er lögð á vönduð fræðileg vinnubrögð við gerð umsóknar. Gert er ráð fyrir að styrkþegi skili sjóðnum skýrslu með helsti niðurstöðum og árangri af verkefninu, þegar því lýkur.

Áætlað er að úthlutun fari fram í byrjun desember við hátíðlega athöfn 2014.
Umsóknum skal skilað á íslensku eða ensku, sem viðhengi á netfang Styrktarsjóða Háskóla Íslands: sjodir@hi.is.

Minningarsjóður Bjargar Magnúsdóttur ljósmóður og Magnúsar Jónassonar bónda var stofnaður við Háskóla Íslands 22. desember 2008 samkvæmt fyrirmælum í erfðaskrá Soffíu Þuríðar Magnúsdóttur, til minningar um foreldra hennar, Björgu Magnúsdóttur ljósmóður og Magnús Jónasson bónda sem bjuggu allan sinn búskap í Túngarði á Fellsströnd. Björg var þar umdæmisljósmóðir árabilið 1910-1951.

Hægt er að styrkja sjóðinn með frjálsum framlögum  t.d. í tilefni brautskráningar eða árgangsafmæla.Fjárhæðir má leggja inn á eftirfarandi bankareikning hjá Landsbankanum, 0111-26-5712 og merkja innborgunina sjóðnum. Kennitala Styrktarsjóða HÍ er 571292-3199.

Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Háskóla Íslands, www.hi.is og á sjóðavef Háskóla Íslands, www.sjodir.hi.is. Einnig hjá Helgu Brá Árnadóttur, verkefnisstjóra styrktarsjóða og hollvina HÍ, helgab@hi.is, sími 525-5894.
 

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is