Styrktarsjóður Margaret og Bent Scheving Thorsteinssonar
Markmið sjóðsins er að standa fyrir rannsóknum á einelti og kanna allar lagalegar og siðferðilegar leiðir til að fyrirbyggja einelti ogbæta fyrir afleiðingar þess.
Þetta er þriðji sjóðurinn sem Bent Scheving Thorsteinsson hefur stofnað við Háskóla Íslands. Sjóðurinn var stofnaður 25. september 2001 með framlagi kr. 11.910.000.
Hinir tveir eru Verðlaunasjóður Óskars Þórðarsonar barnalæknis og fósturföður Bents, sem styrkir rannsóknir á sviði barnalækninga, og hinn er Verðlaunasjóður Bergþóru og Þorsteins Scheving Thorsteinssonar, föður Bents, til styrktar rannsóknum á sviði lyfjafræði. Bent er sonur Þorsteins Scheving Thorsteinssonar og barnsmóður hans, Guðrúnar Sveinsdóttur, er síðar giftist Óskari Þórðarsyni barnalækni.
Samtals nema gjafir Bents til Háskóla Íslands á sl. 10 árum rúmlega kr. 60 milljónum króna og er það rannsóknarstarfi við Háskólann mikil lyftistöng að eiga jafngóðan velunnara og Bent Scheving Thorsteinsson.
Sjóðurinn starfar samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og hefur sjálfstætt starfandi stjórn.
Staðfest skipulagsskrá (.pdf).
Fréttir
- 21. feb 2012 Styrkir til eineltisrannsókna
- 08. des 2011 Eineltisrannsókn vekur athygli
- 19. ókt 2011 Styrkur til rannsókna á einelti
- 20. júl 2010 Styrkir til MA nema til rannsókna á einelti
- 25. jún 2010 Styrkur til rannsóknar á einelti
- 1 of 2
- ››
