Sumarvinna við sjálfstæðar rannsóknir í boði
Nýsköpunarsjóður námsmanna auglýsir eftir umsóknum um styrki. Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknastofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða námsmenn í grunn- og meistaranámi við háskóla til sumarvinnu við metnaðarfull og krefjandi rannsóknaverkefni.
Næsti umsóknarfrestur er til 8. mars 2012. Á heimasíðu Rannís er hægt að fá frekari upplýsingar.

