Tækjakaupasjóður
Tilgangur Tækjakaupasjóðs Háskóla Íslands er að efla rannsóknir og kennslu við háskólann. Tækjakaupafé er úthlutað af tækjakaupanefnd á grundvelli
umsókna frá kennurum og sérfræðingum, sem forgangsraðað er af
vísindanefndum fræðasviða. Umsóknarfrestur er 15. mars í forgangsröðun fræðasviðs. Úthlutað í maí.
Umsóknareyðublað (application form)
Afgreiðsla styrkja:
Skv. ákvörðun háskólaráðs eru tæki sem keypt eru fyrir styrk úr sjóðnum eign Háskóla Íslands. Fáist styrkur úr Tækjakaupasjóði er stofnað sérstakt verkefnisnúmer í bókhaldi Háskólans um styrkinn. Hafa skal samráð við innkaupastjóra og fá samþykki hans fyrir pöntuninni.
Úthlutun fyrir árið 2013 er lokið - listi yfir styrkþega

