Háskóli Íslands

Þórsteinssjóður – Fyrsti styrktarsjóður Háskóla Íslands til styrktar blindum og sjónskertum

Stofnaður hefur verið nýr styrktarsjóður til styrktar blindum og sjónskertum við Háskóla Íslands – Þórsteinssjóður. Sjóðurinn er stofnaður af Blindravinafélagi Íslands. Tilkoma sjóðsins breytir stórkostlega möguleikum blindra og sjónskertra til að helga sig háskólanámi en í dag eru sjö blindir og sjónskertir nemendur sem njóta úrræða við Háskóla Íslands. Við undirritun tekur Kristín Ingólfsdóttir rektor við stofnfé sjóðsins að upphæð 30 milljónir króna.

Þórsteinssjóður er til minningar um Þórstein Bjarnason, stofnanda Blindravinafélags Íslands. Tilgangur Þórsteinssjóðs er að styrkja blinda og sjónskerta til náms við Háskóla Íslands. Enn fremur er sjóðnum ætlað að efla rannsóknir á öllum fræðasviðum sem aukið geta þekkingu á blindu og skertri sýn og afleiðingum hennar, og ýta þannig undir tækifæri blindra og sjónskertra til að auðga og efla líf sitt. Sérstök áhersla er lögð á styrki í félags- og hugvísindum sem falla að tilgangi sjóðsins.

Hlutverk og tilgangur Þórsteinssjóðs helgast af æviverki Þórsteins sem fæddist 3. desember árið 1900. Hann stofnaði Bindravinafélag Íslands 24. janúar 1932 og var það fyrsti vísir að félagi til hjálpar fötluðum á Íslandi. Þórsteinn helgaði líf sitt blindum og sjónskertum á Íslandi á 20. öld án þess að taka nokkru sinni laun fyrir heldur lagði félaginu til fé úr eigin vasa.

Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem ánafnaðar hafa verið Háskóla Íslands, allt frá stofnun skólans. Flestir starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja við ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta eða starfsfólk.

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is